fjallagarðar Stærstu fjallagarðar heims hafa myndast þar sem jörðin krumpast við það að jarðskorpuflekarnir rekast saman. Þannig fjöll heita fellingafjöll og teygja sig hundruð eða þúsundir kílómetra yfir yfirborðið.
|
jarðskjálftar Vegna jarðskorpuhreyfinga verða jarðskjálftar á hverjum degi þó að við tökum ekki eftir þeim.
Flestir skjálftarnir verða á flekamótum. Næstum því allir jarðskjálftar eru litlir og valda litlu sem engu tjóni. Stórum skjálftum fylgja margir smærri skjálftar, svokallaðir eftirskjáltar. |