Hvað er landrek
Jarðskorpan er mynduð af svonefndum jarðskorpuflekum sem hreyfast hver gagnvart öðrum. Þessi lárétta hreyfing jarðskorpuflekanna á yfirborði jarðar kallast landrek. Með landrekinu hafa meginlönd flust til og frá , höf opnast og lokast, fjallgarðar risið og eldfjöll myndast. Jarðskorpuflekarnir hreyfast mishratt, í dag er hraði þeirra frá 2-20 cm á ári.
HVAÐ ERU JRÐSKORPUFLEKAR? Sjö stærstu jarðskorpuflekarnir þekja yfir 94% af yfirborði jarðar og aðrir minni flekarnir þekja þau 6% sem upp á vantar. Þeir stærstu flekarnir eru Kyrrahafsflekinn, Evrasíuflekinn, Ástralíuflekinn, Suður-Ameríkuflekinn og Juan de faca flekinn.
|
HVAÐ ERU FLEKAMÓT? Flekamót er þegar flekar jarðskorpurnar rekast á, mætast eða dragast frá. Það eru þrjár tegundir af flekamótum, fráreks-, samreks- og hjáreksbelti. Fráreksbelti nefnist þegar fleka rekur í sundur. Samreksbelti nefnast þau svæði þar sem flekar hreyfast á móti hvor öðrum. Á hjáreksbeltum er rekstefna flekanna samsíða, ýmist í gagnstæðar áttir eða í sömu átt og þá er hvor á sínum rekhraða. Flekarnir stækka hvorki né minnka í þessu ferli.
|